Himinlifandi með nýtt húsnæði

Velferð

""

„Það er rík ástæða til að brosa breitt og starfsmenn eru himinlifandi með að fá nýtt húsnæði í Efstaleiti,“ segir Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri þjónustumiðstöðvar Laugardals, Háaleitis og Bústaða, um fyrirhugaða flutninga þjónustumiðstöðvarinnar í Útvarpshúsið í Efstaleiti 1.

Búið er að samþykkja í borgarráði að taka á leigu húsnæði Ríkisútvarpsins að Efstaleiti 1 fyrir starfsemi Þjónustumiðstöðvar Laugardals-, Háaleitis- og Bústaðahverfis sem núna er staðsett í Síðumúla 39.

Þegar þjónustumiðstöðvar borgarinnar voru settar á laggirnar árið 2005 var gert ráð fyrir að Síðumúli 39 yrði bráðabirgðahúsnæði fyrir þjónustumiðstöðina, nú 10 árum síðar er loksins komið að flutningum í nýtt húsnæði.

Leit að heppilegra húsnæði fyrir starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar hefur staðið yfir í nokkurn tíma en núverandi húsnæði þarfnast verulegra endurbóta.

Við Þjónustumiðstöð Laugardals,  Háaleitis og Bústaða starfa ríflega 600 manns á yfir 20 starfsstöðvum í hverfunum. Hluti þessara starfsmanna starfar vítt og breitt í hverfunum,  við stuðning á heimilum aldraðs, langveiks og fatlaðs fólks.

Sameinuð heimahjúkrun og heimaþjónusta er til húsa í Síðumúla 39 auk stuðningsþjónustu fyrir fatlað fólk og margs konar sérfræðiþjónustu við íbúa hverfanna. Starfsemin fer fram alla daga vikunnar frá hálfátta á morgnana til miðnættis.

Fjöldi starfsmanna sem á bækistöð í Síðumúla 39 eru um 120. Þessir starfsmenn fá mun betri vinnuaðstöðu en nú er þegar  flutt verður í Efstaleitið.  Reykjavíkurborg tekur á leigu tæplega 1900 fermetra á fjórðu og fimmtu hæð útvarpshússins auk hluta úr sameign og tekur leigusamningurinn til næstu 15 ára frá og með maí 2015.

Þegar starfsmenn þjónustumiðstöðvarinnar flytja í útvarpshúsið munu þeir í fyrsta skipti búa við þann munað að hafa mötuneyti á vinnustað en til stendur að þeir deili mötuneyti með starfsmönnum RÚV.