Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að ráða Helga Grímsson sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs.
Helgi hefur um árabil starfað sem skólastjóri, skólaráðgjafi, aðstoðarskólastjóri og forstöðumaður frístundamiðstöðvar. Hann hefur m.a. starfað sem skólastjóri í Laugarnesskóla og síðast í Sjálandsskóla í Garðabæ, en skólinn fékk íslensku menntaverðlaunin 2011.
Helgi lauk meistaragráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands 2012 og hefur jafnframt B.Ed. próf og diplómu í stjórnun menntastofnana frá Kennaraháskóla Íslands. Hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu af starfi í opinberri stjórnsýslu og rekstrarumhverfi skóla- og frístundastarfs. Þá hefur Helgi víðtæka reynslu af stefnumótun í skóla- og frístundastarfi, á sviði sveitarstjórnarmála og hjá skátahreyfingunni. Hann býr yfir góðum leiðtoga- og samskiptahæfileikum, hefur sýnt metnað í brautryðjendastarfi og er með sterka sýn í skólamálum.
Alls bárust 18 umsóknir um sviðsstjórastarfið en fjórir umsækjendur drógu umsókn sína til baka. Umsóknarfrestur rann út 24. júní sl.
Helgi Grímsson tekur við starfi sviðsstjóra 1. október en þá lætur Ragnar Þorsteinsson af störfum.