„Heimurinn breytist hraðar en skólinn“

Skóli og frístund

""

Kennarar í Reykjavík fjölmenntu á ráðstefnuna Til móts við framtíðina – um fagmennsku og virðingu kennarastarfsins, sem haldin var á Nordica Hilton hótelinu á öskudag. 

Á ráðstefnunni voru flutt tvö áhugaverð erindi um stöðu og mikilvægi kennarans og ráðstefnugestir unnu í hópastarfi og ræddu um virðingu kennarastarfsins.  

Í erindi aðalfyrirlesarans Dr. Toby Salts, sérfræðings hjá Ormiston Academies Trust í Bretlandi, kom m.a. fram að heimurinn  væri að breytast hratt með örri alþjóðavæðingu, hraðar en kennarastarfið og skólinn. Skortur væri fyrirsjáanlegur á kennurum, meðalaldur þeirra væri hár, en flestum þeirra þætti aftur á móti mjög vænt um starf sitt en finndist það vanmetið og illa launað. Einnig sagði hann að ekki væri beint samhengi á milli fjármagns sem varið væri til menntakerfisins og gæða þess, þar réði miklu frekar gæði kennslunnar og kennaramenntunarinnar.

Í erindi Önnu Kristínar Sigurðardóttur dósents við HÍ kom fram að breyttur veruleiki gerði nýjar fagkröfur til kennarans, hann væri nú fyrst og fremst samstarfsmaður og um leið rannsakandi, leiðtogi, nemandi og miðlari sem ræktaði fagmennsku sína í kennarahópnum.

Að loknum erindum ræddu ráðstefnugestir saman í hópum um virðingu kennarastarfsins en starfshópur mun vinna úr niðurstöðum þeirra umæðna.      

Sjá ítarefni um efni ráðstefnunnar.