Heimsókn þeirra sem lifðu af kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki

Skóli og frístund Mannlíf

""

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tók í morgun á móti góðum gestum frá Japan, en tilefni heimsóknarinnar var að 70 ár eru liðin frá kjarnorkuárásunum á borgirnar Hiroshima og Nagasaki.  Á meðal gesta voru 7 manns sem lifðu af kjarnorkuárásirnar. 

Í  tilefni þessara tímamóta tóku samtökin Mayors for Peace, sem Reykjavíkurborg á aðild að, og samtökin Peace Boat höndum saman um verkefnið  I Was Her Age eða Ég var á hennar aldri. Verkefnið snýst um að þeir sem voru á barnsaldri þegar kjarnorkuárásirnar voru gerðar á Hiroshima og Nagasaki og lifðu þær af af ferðist vítt og breitt um heiminn til þess að breiða út friðarboðskap. Þeir sem lifðu af kallast á japönsku Hibakusha eða í beinni þýðingu Fólkið sem varð fyrir áhrifum atómsprengjunnar er nú á aldrinum 75 til 81 árs. (Upplýsingar um japönsku gestina á ensku).

Friðarskipið siglir á milli landa með það að leiðarljósi að vekja athygli á friði, mannréttindum og umhverfisvernd. Það kom til Reykjavíkur snemma í morgun miðvikudaginn 10.  júní og var haldin móttaka fyrir gestina í Höfða. Fimm barnafjölskyldum var boðið í Höfða og ræddu japönsku gestirnir við börnin og sögðu þeim sögu sína. Hr. Hironaka Masaki var fimm ára þegar sprengjunni var varpað á Hiroshima. Hann sagði frá því að þegar sprengja sprakk þá var hann að leika sér við læk í um 3,5 kílómetra fjarlægð frá þeim stað þar sem sprengjan lenti.

„Ég og systir mín og móðir komumst af en við fundum ekki föður minn strax. Við leituðum skjóls í loftvarnarbirgi. Það var yfirfullt af fólki með alvarleg brunasár og sumir voru nær dauða en lífi. Við leituðum föður míns og þegar við loks höfðum upp á honum sáum við að hann var illa brenndur á  bakinu og þakinn glerbrotum. Við reyndum að hlúa að honum  en hann lést af sárum sínum aðeins 39 ára að aldri. Ég gleymi þessu aldrei, þó ég hafi verið ungur að árum. Við viljum kjarnorkuvopnalausan heim, svona lagað má aldrei gerast aftur. Þess  vegna erum við hér til að miðla reynslu okkar til komandi kynslóða“, sagði Hr. Masaki með tárin í augunum. Frásögn hans var mjög tilfinningaþrungin og lét engan ósnortinn sem á hlýddi.

Þegar kjarnorkusprengjunni „Litla drengnum“ var varpað úr flugvélinni Enola Gay að morgni 6. ágúst 1945 áttu yfir 30.000 börn á aldrinum 6 - 11 ára heima í Hiroshima. Helmingur þeirra lést samstundis eða skömmu síðar og foreldrar þeirra gátu ekkert gert þeim til bjargar - ef þeir voru þá sjálfir á lífi. Þremur dögum síðar, þegar sprengjuvélin Bockscar varpaði „Feita karlinum“ á Nagasaki endurtók hryllingurinn sig en í þeirri árás voru  8.000 börn drepin.

„Hibakusha“ telja að allir foreldrar sem heyra söguna þeirra muni gera allt til að forða börnum sínum frá svo grimmum örlögum og vilja því koma boðskapnum á framfæri sem víðast. Að lokinni athöfninni í Höfða héldu gestirnir í skoðunarferð um borgina en þeir halda aftur um borð í Friðarskipið síðdegis og halda friðarferð sinni áfram.