Heilsueflandi skóli í heilsueflandi samfélagi

Skóli og frístund

""
Reykjavíkurborg og Embætti landlæknis standa fyrir opnum fundi um heilsueflandi skóla í heilsueflandi samfélagi fimmtudaginn 12. nóvember í Hlöðunni Gufunesbæ, kl. 16:30-17:30.
Goof Buijs, framkvæmdastjóri samtaka Heilsueflandi skóla í Evrópu (Schools for Health in Europe, SHE network) verður með erindi á fundinum og svarar fyrirspurnum. Umræður að því loknu.
 
Schools for Health in Europe  leggja áherslu á að skólinn geri heilsueflingu að órjúfanlegum hluta af stefnumótun í menntun og heilbrigðismálum í Evrópulöndum. Öll Evrópulönd er hvött til að þróa og innleiða stefnu um heilsueflingu í skólum.
 
Embættis landlæknis er aðili að SHE og hefur stýrt heilsueflandi skólaverkefnum frá árinu 1999 en núverandi fyrirkomulag á Heilsueflandi skóla hefur verið í þróun frá árinu 2007. Embætti landlæknis hefur þróað ramma og leiðbeiningar til að innleiða þessa nálgun fyrir grunn- og framhaldsskóla og er langt komin með leiðbeiningar fyrir leikskóla.



Heilsueflandi skólar er heildræn hugmyndafræði um heilsueflingu í skólastarfi sem auðveldar skólum að innleiða grunnþátt menntunar um heilbrigði og velferð með virkri þátttöku starfsfólks, nemenda,foreldra og nærsamfélags  taka þátt. Skólar eru hvattir til að móta sér langtímastefnu um eflingu heilbrigðis og vellíðanar nemenda og starfsfólks. Skólar geta sótt um að gerast Heilsueflandi skólar á vefsíðunni www.landlaeknir.is.  Allir framhaldsskólar landsins hafa ákveðið að starfa samkvæmt þessari hugmyndafræði og 73 grunnskólar eða  40% grunnskóla. Opnað verður fyrir umsóknir fyrir Heilsueflandi leikskóla á árinu 2016.
 
Sveitarfélögum stendur einnig til boða að innleiða hugmyndafræði Heilsueflandi samfélags á vegum Embættis landlæknis sem leið til að vinna markvisst að aukinni velferð, vellíðan og heilbrigði íbúanna. Nokkur sveitarfélög hafa þegar gert samning við Embættið og er Reykjavíkurborg eitt af þeim. Þar er m.a. unnið að því að virkja skóla og frístundaheimili til þátttöku í heilsueflandi starfi með stuðningi frá sveitarfélaginu. Heilsueflandi Breiðholt er sem dæmi  að móta sitt starf með samstarfi allra stofnanna í hverfinu þar sem horft er á heildræna nálgun að heilsueflingu og vellíðan með þátttöku allra í hverfinu.
 
Allir eru velkomnir á fundinn í Hlöðunni Gufunesbæ.