Sjálfboðaliðar á vegum Rauða krossins koma vikulega í skólabókasafnið í Háteigsskóla og aðstoða börn við heimanámið.
Frístundaheimilið Halastjarnan er í samstarfi við Rauða krossinn með þetta verkefni sem heitir Heilahristingur og snýst um að bjóða börnum í 2.-4. bekk aðstoð við heimanámið, Á hverjum miðvikudegi mæta sjálfboðaliðar á bókasafn Háteigsskóla á milli 14.30 og 16.00 og vinna með börnunum að margvíslegum verkefnum, svo sem í lestri, ritun og stærðfræði.
Tilgangur verkefnisins er að styðja og styrkja nemendur í námi sínu og kynna þeim þjónustu skólabókasafnsins. Megináhersla er lögð á gott námsumhverfi, að vekja nemendur til umhugsunar um framtíðarmöguleika sína, styrkja sjálfsmynd þeirra og gefa þeim möguleika á að hitta vini sína og eignast nýja.
Meðal sjálfboðaliða er Kristín Hulda Gísladóttir tvítugur sálfræðinemi. Hún segir að það sé gott að finna að hún komi að gagni. "Það er öðru vísi fyrir börnin að læra hér en heima með foreldrum sínum, kannski er betri einbeiting og næði hérna á bókasafninu og svo er alltaf gaman að vinna saman í hóp."
Jóhanna Axelsdóttir er annar sjálfboðaliði sem áður vann á leikskóla en er nú komin á eftirlaun. Henni finnst afar gaman að hjálpa börnunum að læra. "Þetta eru rosalega duglegir krakkar sem ég er að vinna með. Þessar stelpur hér eru í 2. bekk og þær eru allar tvítyngdar."
Verkefnið Heilahristingur er unnið í samstarfi Borgarbókasafns, Rauða krossins og Frístundaheimila Kamps að danskri fyrirmynd sem heitir "Projekt 100 lektiecaféer". Bókasafnið þykir hentugt fyrir starfsemi af þessu tagi þar sem það er hlutlaus, afslappaður og óformlegur staður þar sem allir eru velkomnir.
Heimasíða verkefnisins er www.heilahristingur.is