Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur verður haldin dagana 5. til 9. nóvember. Sem fyrr er gróskan og fjölbreytnin mikil og meðal þess sem hægt er að skoða á sýningunni eru skartgripir, barnaföt, munir úr tré og horni og beini, leðurvörur, skór og fatnaður.
Þetta er í fjórtánda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir og skipuleggur þennan viðburð en sýningin var haldin í fyrsta sinn árið 2006. Í morgun hafa listamenn og hönnuðir verið önnum kafnir við að setja upp varning í sýningarbása og er fjölbreytinin í fyrirrúmi. Barnafatnaður, skartgripir, húsbúnaður og útskornir munir svo eitthvað sé nefnt.
Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið frá upphafi og hefur aðsóknin alltaf verið mjög mikil. Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á einum stað. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem kynna vörur sínar á sýningunni.
Nánari upplýsingar um sýninguna
Opnunartíminn er eftirfarandi:
Fimmtudagur 5. nóv. kl. 16 - 19
Föstudagur 6. nóv. kl. 10 - 18
Laugardagur 7. nóv. kl. 10 - 18
Sunnudagur 8. nóv. kl. 10 - 18
Mánudagur 9. nóv. kl. 10 - 18
aðgangur ókeypis
Fimmtudagur 5. nóv. kl. 16 - 19
Föstudagur 6. nóv. kl. 10 - 18
Laugardagur 7. nóv. kl. 10 - 18
Sunnudagur 8. nóv. kl. 10 - 18
Mánudagur 9. nóv. kl. 10 - 18
aðgangur ókeypis