Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur verður haldin í þrettánda sinn dagana 14. til 18. maí nk. en fyrsta sýningin var haldin árið 2006. Þessar sýningar hafa tekist afar vel og hafa skapað sér sess í íslensku menningarlífi.
Sýningin Handverk og hönnun hefur verið afar vinsæl og fjölsótt. Sýnendur eru orðnir tæplega þrjúhundruð og mikill áhugi fyrir því sem er á boðstólum hverju sinni.
Sýningin verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 14. til 18. maí nk. Sem fyrr er gróskan og fjölbreytnin mikil og meðal þess sem hægt er að skoða á sýningunni í maí eru skartgripir, barnaföt, munir úr tré, horni og beini, leðurvörur, skór og fatnaður.
Á sýningunni í vor verður bryddað upp á þeirri nýbreytni að sérstök kynning verður á handverki alla dagana. Tatiana Solovyeva kynnir vefnað á stólsetum á föstudag, Rita Freyja og Páll kynna vinnslu á hornum og beinum á laugardag, Anna Stefanía Magnúsdóttir og Freyja Kristjánsdóttir kynna knipl á sunnudag og Úlfar Sveinbjörnsson kynnir tálgun á fuglum úr tré á mánudag.
Þetta er í þrettánda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir og skipuleggur þennan viðburð en sýningin var haldin í fyrsta sinn árið 2006. Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið frá upphafi og hefur aðsóknin alltaf verið mjög mikil. Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á einum stað. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem kynna vörur sínar á sýningunni.
Hægt að skoða kynningu á öllum þátttakendum í maí á síðunni handverkoghonnun.is.
Opnunartíminn:
fimmtudagur 14. maí kl. 16 - 19,
föstudagur 15. maí kl. 10 - 18,
laugardagur 16. maí kl. 10 - 18,
sunnudagur 17. maí kl. 10 - 18,
mánudagur 18. maí kl. 10 - 18.
Allir eru velkomnir - aðgangur ókeypis.