Hallar á norræn tungumál

Skóli og frístund

""

Upplýsingar frá skólastjórnendum í 92 grunnskólum í landinu sýna að verulega hallar á kennslu í norrænum tungumálum í skólum landsins. Þetta kemur fram í fréttabréfi Tungumálavers í Laugalækjarskóla sem þjónar öllu landinu.   

 
Samkvæmt viðmiðunarstundaskrá sem birt er í aðalnámskrá eru 1380 mínútur ætlaðar hverjum nemanda í kennslu í erlendu tungumáli á viku, ensku og dönsku. Í ljós kom í könnun Tungumálavers að innan við 40% þess tíma er nýttur til kennslu í norrænu tungumáli. 23 skólar af 92, eða innan við fjórðungur, býður nemendum upp á að helmingi tungumálakvótans sé varið til kennslu í norrænum málum.
 
Athygli vekur í könnun Tungumálavers að nemendur í sumum stóru safnskólanna á unglingastigi hafa ekki fengið sambærilegan tíma í kennslu í norrænu tungumáli á miðstigi og er munurinn allt 1-2 kennslustundir á viku. Fjórðungur grunnskólanna í landinu kenna dönsku í 6. bekk og nokkur dæmi eru um dönskukennslu í 5. bekk.
 
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er gert ráð fyrir því að nemendur hafi náð sambærilegri hæfni í ensku og dönsku eða öðru Norðurlandatungumáli við lok grunnskólans.