Skóla- og frístundaráð ákvað á fundi sínum í dag að ráða Gunni Árnadóttur í starf leikskólastjóra við Garðaborg. Sex umsækjendur voru um stöðuna en umsóknarfrestur rann út 2. mars sl.
Gunnur Árnadóttir hefur lokið B.Ed. prófi í leikskólafræðum og 60 einingum til meistaranáms í náms- og kennslufræði við HÍ. Hún hefur starfað sem aðstoðarleikskólastjóri og síðast sem deildarstjóri í Garðaborg þar sem hún hefur m.a. leitt þróunarverkefni um lýðræði í leikskóla.