Grunnskólar Reykjavíkur verða settir mánudaginn 24. ágúst. Um 1.600 börn munu hefja nám í 1. bekk, eða um eitt hundrað fleiri börn en haustið 2014.
Skólastarf veturinn 2015 - 2016 er að hefjast í 34 almennum grunnskólum í Reykjavík, 2 sérskólum og 7 sjálfstætt reknum skólum. Um 14.000 nemendur á grunnskólaaldri hefja nám, þar af eru um 1.600 börn sem hefja nám í 1. bekk.
Undirbúningsstarf fyrir skólabyrjun er nú í fullum gangi og verður skólasetning mánudaginn 24. ágúst í öllum almennum grunnskólum. Á heimasíðum skólanna má finna upplýsingar um skólabyrjun, mætingar árganga og innkaupalista. Einnig má finna hér tímasetningar mætinga nemenda.
Sjá tímasetningar fyrir mætingu í einstökum skólum.