Nær sex hundruð grunnskólakennarar í borginni sækja nú námskeið í svokölluðum haustsmiðjum sem haldnar eru dagana 12. - 13. ágúst. Þar er boðið upp á 20 símenntunarnámskeið sem tengjast námi og kennslu.
Meðal þess sem kennarar geta menntað sig í eru aðferðir í byrjendalæsi, stuttmyndagerð, leiðir til að efla félagsfærni og samskipti, hvernig nota má rafbækur og spjaldtölvur í skólastarfi og skýlausnir. Flestir skráðu sig á námskeið um byrjendalæsi eða um 100 kennarar. Námskeiðin fara flest hver fram í Vogaskóla þar sem kennslustofur voru þéttsetnar í morgun.
Haustsmiðjurnar eru liður í símenntun grunnskólakennara og eru skipulagðar í samstarfi við skólastjórnendur.