Grunnskólabörn fá bók að gjöf á alþjóðadegi læsis

Skóli og frístund Mannlíf

""

Nesti og nýir skór - úrval úr íslenskum barnabókum er titill nýútkominnar bókar sem öll börn í 1. bekk grunnskólans fá að gjöf.   

Á næstu dögum mun öllum nemendum landsins sem sitja í 1. bekk berast bréf þar sem þeim er boðið að koma á almenningsbókasafnið sitt að sækja eintak af bókinni. Bókin er gefin út af IBBY á Íslandi og Forlaginu og geymir sögur, myndir og ljóð frá fyrri tímum, sögur sem foreldrar, kennarar, ömmur og afar þekkja. Útgáfuhóf verður haldið í Borgarbókasafninu Grófinni kl. 17 í dag.

Bókasafnsdagurinn er líka í dag og verða ýmsar uppákomur af því tilefni á bókasöfnunum. Í öllum söfnum borgarinnar verður t.d. boðið upp á Vísur í veskið eða vasann, lítil umslög sem innihalda vísur eða ljóð eftir íslenskar konur. Þá verða á söfnunum skemmtilegar skjámyndasýningar með myndum af fólki að lesa við hinar ýmsu aðstæður. 

Á skólabókasöfnunum verður margt um að vera í tilefni alþjóðadags læsis, t.d. geta nemendur í skólasfaninu í Háteigsskóla fengið tækifæri til að skrifa og klára setninguna Það er gott að lesa.....

Hér má heyra lagið Það er gott að lesa sem Ingó veðurguð syngur.