Grænfáni við Vinagerði

Skóli og frístund

""

Leikskólinn Vinagerði skartar nú Grænfána eftir skipulagt umhverfisstarf. 

Leikskólinn Vinagerði tók við Grænfána á hásumri við hátíðlega athöfn. Við athöfnina lék brassband Hins hússins fyrir börn og foreldra og boðið var upp á kaffiveitingar og köku. 

Grænfáninn er alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að efla umhverfismennt og styrkja vitnesku um gildi sjálfbærni í skólum.

Sjá meira um Grænfánann.