Menningarnótt er stærsta hátíð sem haldin er á Íslandi og er mikil áhersla lögð á að vanda til verka þegar kemur að skipulagi og öryggismálum á hátíðarsvæðinu. Hátíðarsvæðið er lokað fyrir bílaumferð og afmarkast við Snorrabraut, Gömlu Hringbraut, Ægisgötu og Mýrargötu. Sæbraut er lokuð frá Snorrabraut. Þetta er eini dagur ársins sem þörf þykir á svo umfangsmiklum götulokunum.
Götulokanir eru mikilvægar fyrir öryggi.
Götulokanir mikilvægar fyrir öryggi
Götulokanir í miðborginni þjóna þeim tilgangi að tryggja öryggi gangandi og akandi vegfarenda. Lokunarsvæðið þjónar einnig þeim tilgangi að halda götum greiðum til þess að sjúkrabílar, lögreglubílar og slökkviliðsbílar geti auðveldlega komist að ef þess þarf. Það er ábyrgðarhluti að halda utan um öryggismál á svona stórri hátíð eins og Menningarnótt er orðin og koma rúmlega 40 stofnanir, félagasamtök og sérfræðingar að útfærslu götulokana og öryggismála s.s. lokunum, aðstoð meðan á hátíð stendur, löggæslu og aðkomu slökkviliðs sjúkrabíla, samgöngum o.fl.
Ókeypis og þægilegar samgöngur
Gestir Menningarnætur eru hvattir til þess að nýta sér ókeypis strætósamgöngur, hjóla eða ganga í bæinn. Strætó ekur að og frá Hlemmi, Hallgrímskirkju og Gömlu Hringbraut gegnt BSÍ. Þeir sem vilja koma á bíl geta nýtt þjónustu sem var í fyrsta skipti í boði í fyrra undir slagorðinu Leggjum fjær og komumst nær. Hægt er að leggja á stórum bílastæðum í Borgartúni og við Kirkjusand og taka svo ókeypis skutlu sem gengur á milli bílastæðanna og miðborgar reglulega frá kl. 12 - 01. Með því að nýta sér strætó eða skutlur frá bílastæðum kemst fólk mun nær hátíðarsvæðinu heldur en hægt er ef reynt er að leggja sem næst miðborginni. Eftir að flugeldasýningu lýkur tekur við sérstök leiðartafla strætó sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni. Dagskrá Menningarnætur lýkur eftir flugeldasýninguna um kl. 23.10.
Aðgengi og þjónusta
Sérstök bílastæði fyrir fatlaða og hreyfihamlaða eru á Skúlagötu, Túngötu og við Hallgrímskirkju. Einnig verður hægt að taka leigubíl inn á Skólavörðuholt, Skúlagötu, Túngötu og BSÍ. Sérstök salerni fyrir fatlaða eru á nokkrum stöðum á hátíðarsvæðinu. Nánari upplýsingar eru á www.menningarnott.is.