Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri setti Menningarnótt formlega á Austurvelli rétt eftir kl. 13 í dag. Menningarnótt á 20 ára afmæli í ár og af því tilefni voru tvö afmælisbörn, þau Jón Víðir Þorvaldsson og Karen Rós Brynjarsdóttir sem fæddust á Menningarnótt fyrir 20 árum fengin til að afhjúpa ljósmyndasýninguna Eftirminnileg augnablik með ljósmyndum sem ljósmyndarar Morgunblaðsins hafa tekið á Menningarnótt í gegnum tíðina.
Borgarstjóri ræsti einnig þriggja kílómetra „skemmtiskokkið“ í Lækjargötu ásamt maraþonhlauparanum og mannréttindafrömuðinum Kathrine Switzer sem varð fyrst kvenna til að hlaupa í Boston maraþoninu í óþökk hlauphaldara.
Allt hefur gengið vel í miðborginni í dag þrátt fyrir talsverðan mannfjölda. Viðburðir eru dreifðir um alla borg og má m.a. sækja borgarstjóra heim í vöfflukaffi en íbúar í Þingholtum opna heimili sín fyrir gestum og gangandi á Menningarnótt. Boðið er upp á nær fimm hundruð viðburði á Menningarnótt í ár.
Veður í Reykjavík í dag er milt og gott með léttum rigningarúða af og til. Eftir hádegi hefur fólki farið fjölgandi í miðborginni en reiknað er með að um 100 þúsund manns sæki stórtónleika á Arnarhóli og flugeldasýninguna í kvöld.
Gestir Menningarnætur eru hvattir til þess að nýta sér ókeypis strætósamgöngur, hjóla eða ganga í bæinn. Strætó ekur að og frá Hlemmi, Hallgrímskirkju og Gömlu Hringbraut gegnt BSÍ. Þeir sem vilja koma á bíl geta nýtt þjónustu sem var í fyrsta skipti í boði í fyrra undir slagorðinu Leggjum fjær og komumst nær. Hægt er að leggja á stórum bílastæðum í Borgartúni og við Kirkjusand og taka svo ókeypis skutlu sem gengur á milli bílastæðanna og miðborgar reglulega frá kl. 12 - 01. Með því að nýta sér strætó eða skutlur frá bílastæðum kemst fólk mun nær hátíðarsvæðinu heldur en hægt er ef reynt er að leggja sem næst miðborginni. Eftir að flugeldasýningu lýkur tekur við sérstök leiðartafla strætó sem miðar að því að koma fólki hratt og örugglega heim úr miðborginni.
Dagskrá Menningarnætur lýkur með flugeldasýningunni kl. 23.10.