Velferðarsvið og geðsvið Landspítalans hafa með góðum árangri unnið saman að því að finna húsnæðislausn fyrir þá sem þurfa sértækan stuðning við búsetu og hafa ekki getað útskrifast af geðdeildum.
Velferðarráð lét bóka á fundi sínum í gær, fimmtudaginn 11. júní, að árangur samstarfsins gæfi fullt tilefni til framhalds. Forsaga þess er að í árslok 2014 voru 16 einstaklingar á geðsviði Landspítalans sem biðu eftir sértæku húsnæðisúrræði hjá Reykjavíkurborg. Með samhentu átaki var leitað lausna fyrir þá sem voru tilbúnir til útskriftar en vantaði viðeigandi húsnæði.
Haldnir voru reglulegir fundir þar sem farið var yfir stöðu þessara einstaklinga og í samstarfi geðdeildar, tengiliða þjónustumiðstöðva við úthlutunarteymi sértækra húsnæðisúrræða og forstöðumanna íbúðakjarna fyrir geðfatlaða tókst að finna viðeigandi lausn fyrir hvern og einn.
Afrakstur samvinnunnar hefur snúið þróuninni við því 1. júní voru einungis fjórir einstaklingar á geðsviði Landspítalans sem biðu eftir viðeigandi húsnæði með stuðningi. Lausn í þeirra málum er í sjónmáli og þess vænst að þeir fái allir viðeigandi húsnæðisúrræði innan þriggja mánaða.
Óhætt að er segja að ofangreint samstarf Landspítala og velferðarsviðs hafi skilað góðum árangri og ekki hafa færri sjúklingar teppt rými á geðdeildum Landspítalans síðustu árin. Mikilvægt er því að viðhalda þessu góða samstarfi milli stofnananna.
Félagsráðgjafar á geðdeildum Landspítalans, tengiliðir þjónustumiðstöðva við úthlutunarteymi sértækra húsnæðisúrræða og forstöðumenn íbúðakjarna eiga hrós skilið fyrir vel unnið verk og gott samstarf, segir í bókun velferðarráðs.