Gjöfull starfsdagur tónlistarkennara

Skóli og frístund

""

Tónlistarkennarar og stjórnendur skólahljómsveita Reykjavíkur áttu nýlega gjöfulan starfsdag. 

Starfsdagurinn var haldinn í Kerhólum í húsnæði Reykjavíkurborgar Borgartúni 12-14. Fyrirlestur Guðrúnar Snorradóttur um jákvæðni og vellíðan í starfi féll í góðan jarðveg. Í kjölfarið sögðu hver öðrum frá ýmsu kennsluefni og kennsluaðferðum sem nýtist þeim vel í starfi og hvað væri spennandi framundan hjá þeim í kennsluháttum.

Eftir sameiginlegt hádegisgrill á svölunum komu svo tónlistarmaðurinn Sigurður Flosason, sem kenndi spunavinnu, og Stefán S Stefánsson, sem ræddi ýmis nettækifæri í kennslunni, og kveiktu í mönnum með spennandi nálgunum. Frábær dagur sem teygðist fram á kvöldið.