Myndlistarkonan Gígja Thoroddsen eða Gía heimsótti Dag B. Eggertsson borgarstjóra í morgun og færði honum tvö listaverk að gjöf. Annað var portrettmynd af borgarstjóra og svo önnur mynd af stúlku.
Gía hefur numið myndlist við Myndlistaskóla Reykjavíkur, hjá Hring Jóhannessyni, í Árósum og Vallkildeskóla í Danmörku. Hún hefur haldið margar myndlistarsýningar í gegnum tíðina meðal annars á sýningunni List án landamæra, samsýningu með Tolla í Norræna húsinu og víðar.
Dagur spjallaði við Gíu um myndirnar og listina almennt. Portrett myndin af borgarstjóra er í rauðum og silfurlitum tónum og sagðist Dagur vera mjög ánægður með bæði protrettmyndina og stúlkumyndina. Gía sagðist hafa sett silfurlit í hárið á borgarstjóra af því að hún tók eftir því að hann væri kominn með gráa lokka. Á hinni myndinni sem hún gaf honum er mynd af stúlku sem hún málaði með gulli, silfri og bronsi sem hún hefur sérhæft sig í að lita með þeim litum á undanförnum árum.
Á facebooksíðu Gígju má sjá sýnishorn af verkum hennar.