Gargandarungar og einn rauðhöfðaungi fluttu búferlum í borginni og tóku sér búsetu í Vatnsmýrinni.
Gargandarungar og einn rauðhöfðaungi fluttu búferlum í borginni í gær, 20. ágúst. Eggin voru tekin við Mývatn fyrr í sumar, ungarnir klöktust út í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum (FHG), dvöldu þar í um sex vikur í góðu yfirlæti og fengu síðan bílferð um borgina sem endaði í Friðlandinu í Vatnsmýri þar sem gerð hefur verið sérstök aðstaða fyrir þá við Norræna húsið.
Einn gargandarungi vildi ekki yfirgefa FHG og lék ýmsar kúnstir til að sleppa undan flutningi. Hann hvarf í kafsundi og faldi sig milli steina og var engin leið að góma hann og var sá ungi því skilinn eftir í bili en mun samgleðjast hinum í frelsinu í Vatnsmýrinni við fyrsta tækifæri.
Þessi ræktun og slepping anda er samstarfsverkefni Fjölskyldu- og húsdýragarðsins og umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar og er einn liður í því að auðga fuglalíf við Tjörnina og bæta lífsskilyrði þeirra í Vatnsmýrinni.
Myndbandið sýnir ungana stíga fyrstu skrefin í Vatnsmýrinni.
P.s. Nýjustu fregnir herma að áttundi unginn sem varð eftir hafi sameinast vinum sínum í Vatnsmýrinni í dag.