Ungir skákmenn og konur skemmtu sér vel í höfuðstöðvum Taflfélags Reykjavíkur dagana 29.-30.nóvember þegar hið geysivinsæla Jólamót SFS og TR var haldið.
Þetta árlega samstarfsverkefni skóla- og frístundasviðs og Taflfélags Reykjavíkur heppnaðist með miklum ágætum og voru fjölmörg skólabörn saman komin þessa tvo snjóþungu daga til þess að njóta ánægjulegra stunda við skákborðin.
Yngri flokkur
Í opnum flokki suðurriðils bar A-sveit Ölduselsskóla ægishjálm yfir keppinauta sína enda skáksveitin römm að afli og reynslu. Sveitin vann alla sex andstæðinga sína en jafnframt gerðu piltarnir sér lítið fyrir og unnu allar 24 skákir sínar. Keppnin um 2. sæti riðilsins og sæti í úrslitum mótsins var æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í síðustu umferð.
B-sveit Ölduselsskóla stóð best að vígi og hafði tveggja vinninga forskot á A-sveit Háteigsskóla, en sveitirnar mættust í umferðinni á undan þar sem niðurstaðan varð 2-2 jafntefli. Í lokaumferðinni vann A-sveit Háteigsskóla mikilvægan 4-0 sigur og piltarnir í B-sveit skólans reyndust A-sveit sinni mikill styrkur því þeir náðu 2-2 jafntefli í viðuriegn við Ölduselsskóla sem tryggði A-sveit Háteigsskóla 2. sætið. B-sveit Ölduselsskóla varð að gera sér 3. sætið að góðu þrátt fyrir frækna frammistöðu.

Í stúlknaflokki suðurriðils reyndist Melaskóli hlutskarpastur með 12,5 vinning. Í 2. sæti varð Breiðagerðisskóli með 10 vinninga. Í 3. sæti með 6 vinninga varð hin unga sveit Háteigsskóla.
Í opnum flokki norðurriðils mætti til leiks feykivel skipuð A-sveit Rimaskóla og vann hún sannfærandi sigur. Eina skáksveitin sem veitti þeim keppni var þeirra eigin B-sveit, og er það til marks um þá miklu breidd sem Rimaskóli hefur yfir að ráða í skáklistinni. B-sveit Rimaskóla hlaut 17 vinninga sem dugði þeim í 2. sæti riðilsins. B-sveitin gerði sér jafnframt lítið fyrir og náði 2-2 jafntefli gegn A-sveitinni. Það var svo A-sveit Ingunnarskóla sem nældi sér í 3.sætið en sveitin hlaut 15 vinninga.
Rimaskóli og Foldaskóli öttu kappi um efsta sætið í stúlknaflokki norðurriðils og örlögin höguðu því þannig að sveitirnar mættust í lokaumferðinni. Eftir mikinn barning hafði Foldaskóli 3-1 sigur og hlaut því 1. sætið en Rimaskóli varð í 2. sæti. Stúlknasveit Árbæjarskóla hafnaði í því þriðja.
Í úrslitum opna flokksins mættust Ölduselsskóli, Háteigsskóli og tvær sveitir Rimaskóla. Ölduselsskóli lagði alla andstæðinga sína og hlaut alls 10,5 vinning í 12 skákum. A-sveit Rimaskóla hlaut silfurverðlaun eftir harða baráttu við B-sveit sína sem nældi sér í bronsverðlaun.

Í úrslitum stúlknaflokks háðu Foldaskóli og Melaskóli harða baráttu um gullverðlaunin. Er upp var staðið munaði aðeins einum vinningi á skólunum tveimur. Foldaskóli hafði betur með 10 vinninga en Melaskóli hlaut 9 vinninga. Munaði þar mestu um að Foldaskóli lagði Melaskóla að velli 3-1. Rimaskóli tryggði sér bronsverðlaunin með 4,5 vinning.
Eldri flokkur
Í opnum flokki eldri flokks mættu til leiks sigurvegarar síðasta árs, A-sveit Laugalækjarskóla. Hún gerði sér lítið fyrir og vann allar skákir sínar tuttugu og fjórar að tölu. Þó Rimaskóli hafi tapað 4-0 fyrir sigursveit Laugalækjarskóla, þá vann hún allar hinar tuttugu skákir sínar. Rimaskóli hafnaði því í 2. sæti mótsins og Langholtsskóli í því þriðja.
Í stúlknaflokki eldri flokks reyndist Rimaskóli hlutskarpastur með 12 vinninga. Laugalækjarskóli hlaut 8 vinninga í 2.sæti og Breiðholtsskóli varð í 3.sæti með 5 vinninga.