Gaman að vinna með jafnrétti

Skóli og frístund

""

Þemadagar um jafnrétti voru í Háteigsskóla í vikunni, en þar hafa nemendur í 10. bekk m.a. stofnað feministafélag.

Viðfangsefni nemenda tengdust því að á þessu ári er fagnað 100 ára afmæli kosningaafmælis kvenna. Börnin fóru á milli starfsstöðva þar sem unnið var með staðalmyndir og jafnrétti á ýmsan veg, s.s. kynbundinn launamun, kynbundið ofbeldi, misrétti í íslensku samfélagi, t.d. vegna fjárhagsstöðu eða aðbúnað aldraðra, kynjaskiptingu varðandi störf og áhugamál og merkisdaga í jafnréttisbaráttu hér á landi.

Nemendur í 7. – 10. bekk sáu myndina Girl Rising þar sem fjallað er um stöðu kvenna í ýmsum löndum og nemendur í 4. – 6. bekk fóru á sýningu í Ásmundarsafni og fræddust um stöðu þvottakvenna í Þvottalaugunum áður fyrr og stöðu vatnsbera, en það var eina starfið þar sem enginn launamunur var á milli kynja.

Nemendur í 1. – 3. bekk skoðuðu hvort munur væri á milli kynja varðandi áhugamál, klæðnað, leiki, störfin heima fyrir, lesefni og leikföng.

Nemendur fóru m.a. í spurningaleiki, bjuggu til vídeóblogg og tímarit, tóku myndir af „stelpu- og stráka“-svæðum á lóð, gerðu margs konar súlurit, myndir og veggspjöld og héldu réttarhöld þar sem tekist var á um jafnréttismál.