Einelti, úrræði og forvarnir er þema Náum áttum fundarins, sem haldinn verður á Grand hótel miðvikudaginn 15. apríl kl. 8.15 - 10.00. Meðal frummælenda er Páll Óskar Hjálmtýsson.
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði, fjallar um árangursríka leið við lausn eineltismála.
Páll Óskar og Magnús Stefánsson eru með erindi undir yfirskriftinni Þolandi og gerandi en þeir fjalla um einelti frjá sjónarhóli beggja. Þeir eru báðir verkefnastjórar hjá Maríta fræðslunni.
Að lokum fjallar Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum, um vináttu sem forvörn gegn einelti.
Allir þeir sem hafa áhuga á málefnum barna og unglinga ættu ekki að láta morgunverðarfund Náum áttum hópsins fram hjá sér fara.
Fundarstjóri verður Sólveig Karlsdóttir, verkefnastjóri hjá Heimili og skóla, en hún mun stjórna umræðum eftir að erindi hafa verið flutt. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.100 krónur en innifalið í því er morgunverður.