Fundur um nágrannavörslu í Breiðholti var haldinn í Gerðubergi miðvikudaginn 11. mars sl. Fundurinn var opinn öllum íbúum Breiðholts, en götustjórar voru sérstaklega hvattir til að mæta. Ellefu manns mættu á fundinn, en alls taka 35 götur þátt í verkefni um nágrannavörslu í hverfinu. Á fundinum fór Arnar Snæberg Jónsson verkefnisstjóri yfir stöðu verkefnisins í heild. Litið var á þróun skráðra afbrota og eignaspjalla í hverfinu skv. tölum frá lögreglunni. Meðal þess sem var rætt var þátttaka og aðkoma lögreglunnar að verkefninu, þörf á tíðari samskiptum og upplýsingaflæði og mögulegar hindranir í fyrirkomulagi þegar nýjar götur byrja að taka þátt í verkefninu, en nýliðun hefur ekki verið mikil undanfarin misseri.
Þá var einnig rætt um að gagnlegt gæti verið að útbúa og greina tölfræði sem geti varpað ljósi á árangur nágrannavörslunnar í hverfinu. Þórdís Lilja Gísladóttir, verkefnastjóri á Þjónustumiðstöð Breiðholts, hélt stutta kynningu um Heilsueflandi Breiðholt sem er nýtt verkefni sem verið er að þróa samhliða innleiðingu forvarnarstefnu Reykjavíkurborgar í hverfinu. Verkefnið er afar viðamikið og er unnið í víðtæku samráði og samvinnu við stofnanir og félög í hverfinu.