Fuglavika í Reykjavík

Umhverfi Íþróttir og útivist

""

Í Fuglaviku verður boðið upp á ýmsa fræðsluviðburði sem allir tengjast fuglum í borginni. Það eru Fuglavernd – stærstu félagasamtök landsins á sviði fuglaverndarmála og Reykjavík-iðandi af lífi, sem er fræðsluátak á vegum Reykjavíkurborgar um náttúru borgarinnar, sem standa að Fuglaviku

Fuglavika er tileinkuð hinu fjölskrúðuga fuglalífi borgarinnar, gildi þess fyrir borgarbúa og mikilvægi Reykjavíkur og nágrennis fyrir viðkomu og velferð íslenskra fugla. 

Markmið Fuglaviku að vekja athygli á hversu mikið og fjölbreytt fuglalíf er í borginu, að varpa ljósi á hin mörgu og mikilvægu búsvæði fyrir fugla sem finnast í okkar næsta nágrenni, og að upplýsa og deila með hvort öðru gildi þess að umgangast fugla í okkar daglega umhverfi.

Dagskrá Fuglaviku hefst laugardaginn 17. október með málþinginu „Fuglar í borg“ sem hefst kl 13 í Hátíðarsal Norræna Hússins. Þar verða flutt þrjú ólík erindi – um mikilvægustu fuglabúsvæði í borginni, um sjónarhorn fuglaljósmyndarans og um fugla sem viðfangsefni í leikskólastarfi. Málþingið er opið öllum, boðið verður upp á kaffi og strax að málþinginu loknu kl 15 verður stutt fuglaskoðun í Friðlandinu í Vatnsmýri.

Boðið verður upp á fjölmargar fuglaskoðanir í Fuglaviku þ.á.m. fuglaskoðun ætluð börnum og fuglaskoðun á ensku. Þessar fuglaskoðanir verða jafnframt víða í borginni á þekktum fuglastöðum. Einnig verður boðið upp á skemmtilegan viðburð í Grasagarði Reykjavíkur sem leikskólabörn í nágrenninu taka þátt í.

Dagskrá Fuglaviku er aðgengileg á vef Fuglaverndar og á vef borgarinnar. Einnig má finna síður fyrir einstaka viðburði á Facebook.

Þá má nefna að í tilefni Fuglaviku kemur út nýr fræðslubæklingur sem heitir Fuglaskoðun í Reykjavík en þar er gefið yfirlit yfir góða fuglaskoðunarstaði í borginni og þeim gerð skil á sérstöku korti. Bæklingurinn verður einnig gefinn út á ensku og verður aðgengilegur á netinu frá og með 17. október.