Á sunnudaginn kl. 11 verður boðið upp á fuglagöngu í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal en í garðinum er fjölskrúðugt fuglalíf.
Fræðslugangan er haldin í samstarfi við Fuglavernd og mun Hannes Þór Hafsteinsson, garðyrkjufræðingur og fuglaáhugamaður, leiða gönguna. Hannes mun fræða gesti um þær fuglategundir sem fyrir augu ber og auk þess skoða hvaða tegundir plantna laða að fugla. Gestum er bent á að gaman getur verið að taka með sér kíki í gönguna.
Mæting við aðalinnganginn kl. 11. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Athugið! Kaffihúsið Café Flóra opnar 1. maí og verður opið daglega frá kl. 10 - 22 í sumar.