Fuglalíf að vetri í Grasagarðinum

Íþróttir og útivist Mannlíf

""
Fjölskrúðugt vetrarfuglalífið í Laugardal verður skoðað á göngu um Grasagarðinn og nágrenni sunnudaginn 13. desember kl. 11. 
Gangan er skipulögð í samstarfi Grasagarðs Reykjavíkur og Fuglaverndar. Um leiðsögn sér Hannes Þór Hafsteinsson, náttúrufræðingur og garðyrkjufræðingur hjá Borgargörðum í Laugardal, en hann þekkir fuglalífið í Laugardalnum manna best og miðlar þeirri þekkingu með skemmtilegum og fróðlegum hætti.
 
Fjölmargar fuglategundir halda til í Laugardal yfir vetrartímann. Algengastir eru skógarþrestir, svartþrestir, starar, auðnutittlingar, stokkendur, grágæsir og húsdúfur. Minnsti fugl Evrópu, glókollurinn, fannst fyrst verpandi á Íslandi 1999. Nú verpa nokkur pör reglulega í Laugardal og ef vel er að gáð má finna þennan smávaxna landnema í trjálundum dalsins. Á hverjum vetri halda nokkrir múasarrindlar til í Laugardalnum og krossnefir og barrfinkur hafa sést af og til í vetur. Og flesta vetur undanfarin ár hafa branduglur sótt í dalinn.


Mæting er við aðalinngang Grasagarðsins. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir. 
 

Það er ýmislegt fleira um að vera í Jóladalnum Laugardal alla helgina;  jólakötturinn og öll hin dýrin taka á móti gestum í Húsdýragarðinum, hægt er að skauta í kringum jólatréð í Skautahöllinni, skoða listaverkin í Ásmundarsafni og fá sér sundsprett í Laugardalslauginni.