Það ríkti góð stemmning og gleði við Breiðholtslaug síðasta föstudag þegar listaverkið Frumskógardrottningin eftir Erró var afhjúpað við hátíðlega athöfn. Fjöldi manns var viðstaddur athöfnina. Verkið er staðsett á loftræstistokk við laugina og er brennt á flísar sem hafa verið settar upp undanfarnar vikur.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri flutti ávarp á viðburðinum. Börn frá fimm leikskólum í Breiðholti sungu nokkur lög og nemendur frá Tónskóla Sigursveins sáu um tónlistarflutning. Eftir að verkið var afhjúpað gæddi fólk sér síðan á kaffi, svaladrykk og kleinum í góða veðrinu.