Frostaskjól stofnun ársins

Skóli og frístund

""

Stofnanir á vegum skóla- og frístundasviðs voru í þremur efstu sætum í árlegri könnun Starfsmannafélags Reykjavíkur um starfsumhverfi og starfsánægju.

Frístundamiðstöðin Frostaskjól lenti í fyrsta sæti stofnana með meira en 50 starfsmenn, Seljaskóli í öðru sæti og Norðlingaskóli í því þriðja. Í fyrra lenti Frostaskjól í öðru sæti og fyrsta sæti í hitteðfyrra.

Frostaskjól er frístundamiðstöð Vesturbæinga og heyra undir hana frístundaheimilin Undraland, Frostheimar, Skýjaborgir og Selið og félagsmiðstöðin Frosti. 



Alls fengu tíu stofnanir viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndastofanir í borg og bæ og voru leikskólarnir Garðasel og Vallarsel Á Akranesi í tveimur efstu sætum minni stofnana og Fossvogsskóli í því þriðja. 

Hástökkvari ársins, þ.e. sú stofnun sem hællar sig mest á milli ára er Grafarvogslaug. 

Félagsmenn St.Rv. velja Stofnun ársins – Borg og Bær og er þetta í fjórða sinn að þessi könnun fer fram. Könnunin er stærsta reglulega vinnumarkaðskönnun sem framkvæmd er hér á landi og var úrtakið í könnuninni rúmlega 50.000 manns.

Val á Stofnun ársins og Fyrirtæki ársins er samvinnuverkefni SFR stéttarfélags, VR. og St.Rv. auk fjármálaráðuneytisinsins sem tekur þátt í könnuninni fyrir alla ríkisstarfsmenn.



Sjá meira um könnunin