Frjótt menningarstarf með börnum og unglingum

Skóli og frístund

""

Börn og unglingar í Reykjavík eiga í vetur kost á fjölbreyttri menningarfræðslu á vegum safna og menningarstofnana. Meðal nýjunga í fræðslustarfi sem boðið verður upp á eru flökkusýningar Listasafns Reykjavíkur um Erró annars vegar og Húmor hins vegar.

Í flökkusýningunni Hvað er svona fyndið?  verður fjallað um hvernig húmor birtist með ýmsu móti í myndlist.  Í þessari fræðslu verða skoðuð verk eftir ýmsa íslenska listamenn sem öll eiga það sameiginlegt að fela í sér kímni og skop þó sumir myndu kannski spyrja; En hvað er svona fyndið?



Þá verður á vegum Listasafnsins hægt að fara í ratleik í Breiðholti og fræðast um 10 útilistaverk í hverfinu og listamennina sem sköpuðu þau. 

Þorskastríðssögur er skemmtilegur og spennandi hlutverkaleikur sem Sjóminjasafnið Víkin skipuleggur fyrir nemendur í  5. - 7. bekk. Þeim verður boðið hlutverk skipverja um borð í varðskipi í  Þorskastríðinu árið 1976. Starfsmaður safnsins er í hlutverki  skipherra og leiðir hópinn í gegnum söguna þegar Óðinn lenti í átökum við breska togarann Artic Corsair við suðausturströnd landsins.  Fyrir þetta fræðsluverkefni voru útbúnir búningar og höfuðföt líkt og áhöfn Óðins klæddist árið 1976. Tilgangur og markmið fræðslunnar er að kynna sögu varðskipsins Óðins og þorskastríðanna í gegnum leik og sköpun.

Lestrarhátíð í Bókmenntaborg er orðinn fastur liður í hauststarfi í borginni, ekki síst í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum. Þema hátíðarinnar nú tengist 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna og verður kastljósi beint að rithöfundinum Svövu Jakobsdóttur og röddum kvenna í bókmenntum. Hátíðin verður undir yfirskriftinni Sögur handa öllum, líkt og titill smásagnasafns eftir Svövu.

Starfsfólk skóla- og frístundamiðstöðva kynnti sér það sem í boði verður í menningarfræðslunni í vetur á kynningarfundi í Listasafni Reykjavíkur 10. september, en aldrei hafa jafn margar menningarstofnanir kynnt fræðslustarfið saman.  

Kynningar verða á fræðslustarfi:

  • Borgarsögusafns Reykjavíkur (Árbæjarsafns, Landnámssýningar, Ljósmyndasafns, Sjóminjasafns, Viðeyjar),
  • Borgarbókasafns Reykjavíkur,
  • Listasafns Reykjavíkur (Ásmundarsafn, Hafnarhúsið, Kjarvalsstaðir),
  • Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO,
  • Bíó Paradís,
  • Borgarleikhússins,
  • Sinfóníuhljómsveitar Íslands,
  • Þjóðminjasafnsins,
  • Listasafns Íslands,
  • Þjóðleikhússins,
  • Ýmis verkefni tengd barna- og unglingamenningu hjá borginni.