Frestur til að skila inn umsóknum í Hverfissjóð Reykjavíkurborgar hefur verið framlengdur til miðnættis 28. apríl vegna bilana á mínum síðum í Rafrænni Reykjavík.
Verkefni sem leitað er að eiga að stuðla að bættu mannlífi, eflingu félagsauðs, fegurri ásýnd borgarhverfa, auknu öryggi eða efla samstarf íbúa, félagasamtaka og fyrirtækja við borgarstofnanir. Hægt er að sækja um styrki til verkefna hvort sem þau tengjast einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni. Sjá nánar Hverfissjóður Reykjavíkurborgar.