Framkvæmdir hefjast við Klettaskóla

Velferð Umhverfi

""

Borgarstjóri og nemendur úr Klettaskóla tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu við skólann. Mikil spenna og eftirvænting ríkti meðal nemenda og aðstandenda sem fjölmenntu til athafnarinnar. Stórvirkari jarðvegsvinnutæki taka við á næstu dögum og grafa fyrir 3.400 fermetra viðbyggingu og auk hennar verða gerðar breytingar á eldra húsnæði skólans.

Erla Gunnarsdóttir skólastjóri Klettaskóla segir að framkvæmdirnar muni gjörbylta starfi skólans til batnaðar og skapa nýja möguleika.  Með nýbyggingu og endurbótum á núverandi húsnæði verða meiriháttar breytingar á aðstöðu, aðgengi og þjónustu við nemendur.

Að loknum jarðvegsframkvæmdum í sumar taka byggingaframkvæmdir við með haustinu. Þær munu taka í heildina um tvö ár og verður að fullu lokið haustið 2018. Heildarkostnaður framkvæmda er um 2,6 milljarðar króna.

Kennslusundlaug, íþróttahús og félagsaðstaða

Íþróttahús, tvær kennslusundlaugar og hátíðar- og matsalur koma norðvestan við gamla skólahúsið. Austan við það mun rísa félagsmiðstöð. Verulegar endurbætur verða gerðar á núverandi húsi og ofan á það verður bætt við hæð með aðstöðu fyrir starfsfólk. Verkgreinastofur flytjast í eina smiðju og frístundaaðstaða verður þar sem nú er íþrótta- og matsalur.  Endurbætur verða gerðar á upplýsingaveri og bókasafni, gangar verða breikkaðir, anddyri stækkað og aðgengismál verða lagfærð.

Í heildina verða ferlimál bætt, leiðir innan og utanhúss styttar og gerðar greiðari. Þannig verður öll kennsla á einni hæð og allri félagsaðstöðu komið fyrir á neðri hæð hússins. Leiksvæði á lóð verður endurgert og mun það henta betur nemendum skólans.

Milduð ásýnd fyrir nærliggjandi byggð

Áhersla hefur verið lögð á við útfærslur að milda ásýnd nýrra húsa gagnvart aðliggjandi byggð, en nýjar byggingar verða að hluta til felldar inn í landið og þaktar með torfi. Viðbyggingin er höfð eins langt frá lóðarmörkum og mögulegt er og íþróttasalurinn niðurgrafinn til hálfs þannig að sá hluti hans sem stendur uppúr á norðurhorni lóðar samsvarar aðeins einni hæð.

Klettaskóli þjónar landinu öllu

Klettaskóli, sem áður var Öskjuhlíðarskóli og Safamýrarskóli, er sérskóli á grunnskólastigi og þjónar hann landinu öllu. Gamla skólahúsið var byggt í tveimur áföngum á árunum 1974 og 1985, en fyrirhugað var að byggja þriðja áfanga síðar og nú er loks komið að þeirri stund. Starfshópur sem vann að undirbúningi mannvirkjagerðarinnar áætlar að í náinni framtíð verði nemendur 80 - 100 talsins.

Nánari upplýsingar