Börnin í leikskólanum Sunnufold ætla að rétta nauðstöddum hjálparhönd á Þorranum og safna fötum fyrir börn í Úkraínu.
Í Sunnufold hafa verið settir upp söfnunarkassar í allar starfsstöðvar skólans og börn, foreldrar og starfsfólk hafa nú þegar fyllt marga kassa sem hafa verið fluttir til Rauða krossins. En þau halda ótrauð áfram að safna út þessa vikuna og ganga skipulega til verks. Þau hafa m.a. farið í nærliggjandi verslun og fengið þar kassa gefins sem þau hafa pakkað fötum í og merkt fallega fyrir sendingu úr landi.
Öll föt sem safnað verður eiga að fara til Úkraínu þar sem nú er kaldur vetur og erfiðleikar. Verkefnið í Sunnufold hefur vafið upp á sig vegna þess að börnin ákváðu að merkja sjálf kassana með teikningum og skrifmáli. Í því starfi hafa vaknað ýmsar spurningar um hjálparstarf Rauða krossins og mikið verið spekúlerað. Þannig kom upp sú spurning hvernig fáni Úkraínu væri og þegar búið var að finna út úr því voru nokkur börn sem ákváðu að teikna bæði úkraínska fánann og þann íslenska og stinga með í kassa.