Haldið var upp á þrítugsafmæli Foldaskóla með hátíðarhöldum og fimmta Grænfánanum.
Þrítugsafmælinu var fagnað með fjölbreyttri skemmtidagskrá þar sem skólahljómsveit Grafarvogs spilaði m.a. fyrir gesti. Þá ávörpuðu Kristinn Breiðfjörð skólastjóri og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri gesti. Sýningar voru um allan skólann og dansýning og fimleikasýning voru á sal. Hápunktur hátíðarinnar var svo þegar Grænfáninn var dreginn að húni við skólann í fimmta sinn.
Í tilefni þessara tímamóta gaf foreldrafélagið skólanum höfðinglega afmælisgjöf, upplýsingakerfi, sem nú verður ekki einungis sýnilegt í skólanum heldur einnig á heimasíðu skólans.
Til hamingju Foldaskóli með þrítugsafmælið!