Í dag verða tvö hús flutt frá Grettisgötu og hefur það í för með sér tímabundna lokun og takmörkun á notkun bílastæða á hluta Grettisgötu, Barónsstíg og Bergþórugötu. Húsin sem verða flutt af skipulagsástæðum eru Grettisgata 17 og bakhús að Laugavegi 36.
Grettisgötu milli Frakkastígs og Klapparstígs verður lokað tímabundið frá hádegi í dag til að koma flutningstækjum að, en húsunum verður lyft á flutningsvagna á Grettisgötu.
Áætlað er að flutningur á húsunum verði eftir kl 17:00 og eru bifreiðastöður óheimilar frá þeim tíma á flutningsleið húsanna en farin verður eftirfarandi leið:
- austur Grettisgötu að Barónsstíg,
- suður Barónsstíg að Bergþórugötu og
- niður Bergþórugötu að Snorrabraut.
Upplýsingar um þessar tímabundnu lokanir var miðlað í dreifibréfi til íbúa og fyrirtækja á svæðinu. Mikilvægt er að bifreiðum sé ekki lagt í stæði á flutningsleiðinni og óhjákvæmilegt er að færa þá bíla sem verða fyrir en það annast Vaka á grundvelli sérstakrar framkvæmdaheimildar og í samráði við lögreglu.
Minjavernd annast flutninginn fyrir Reykjavíkurborg. Húsin verða flutt út á Hólmaslóð og geymd þar til grunnur á framtíðarstað þeirra að Grettisgötu 9 a og b hefur verið gerður.