Flokkun endurvinnsluefna á Skólavörðustíg

Umhverfi Heilbrigðiseftirlit

""

Reykjavíkurborg mun bjóða upp á flokkun endurvinnsluefna á almenningssvæðum í borginni. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að setja upp 15 nýja stampa í miðborginni til að byrja með og verða þeir staðsettir á Skólavörðustíg. Stamparnir munu taka við fjórum flokkum: pappír og pappa, plasti, drykkjarumbúðum með skilagjaldi auk blandaðs úrgangs. 

Í Reykjavík eru nú um 1.300 götustampar víðs vegar um borgina ætlaðir undir efni sem til fellur á leið fólks um borgarlandið. Það sem safnast í þá hefur hingað til farið í urðun en tilkoma nýju flokkunarstampanna mun auka endurvinnslu í borginni. Ríflega 210 kg af blönduðum úrgangi safnast að jafnaði á hverjum degi í stampana í miðborginni og hefur rannsókn á samsetningu hans sýnt að það er mest plast, pappír og pappi og lífræn efni, þ.e. hundaskítur, sem berst í stampana.  

Nýju götustamparnir hafa hólf fyrir fjóra flokka.

1.      Pappír og pappa, þ.e. fimm tegundir pappírs og pappa.

2.      Plast.

3.      Drykkjarumbúðir með skilagjaldi, þ.e. áldósir og flöskur úr gleri og plasti.

4.      Blandaður úrgangur.



Flokkunarstamparnir verða með lituð lok og leiðbeinandi merkingar til að aðgreina úrgangsflokkana og aðstoða íbúa og gesti borgarinnar við að skila úrganginum í rétt hólf. Endurvinnsluefnunum sem safnast verður komið til vinnslu með tilheyrandi umhverfislegum ávinningi. Fylgst verður með endurvinnsluefnunum sem berast í stampana til að meta árangurinn af flokkun í þessa nýju stampa.

Flokkunarstamparnir verða settir upp á Skólavörðustíg

Fólk sem á leið um Skólavörðustíg er eindregið hvatt til að nýta sér nýju stampana og leggja þannig lóð á vogaskálar aukinnar flokkunnar og skila til endurvinnslu í Reykjavík.