Fleiri börn og unglingar taka þátt í skipulögðu frístundastarfi

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Þátttaka í skipulögðu frístundastarfi barna og ungmenna hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum í Reykjavík.

Skráning í starfsemi íþrótta- og tómstundafélaga í borginni og nýting Frístundakortsins á árunum 2007-2014 sýnir þessa þróun glögglega. Þetta má m.a. lesa úr frístundakortsgrunni Rafrænnar Reykjavíkur en þar vistast öll skráning í starfsemi félaganna sem aðild eiga að Frístundakortinu. 

Íþrótta- og tómstundasvið borgarinnar sér um Frístundakortið og birtir reglulega yfirlit yfir þátttöku í starfsemi félaganna. Um 200 félög eiga nú aðild að Frístundakortinu. Nær níu af hverjum tíu börnum og unglingum á aldrinum 6-18 ára voru á liðnu ári skráð í starfsemi á vegum félaganna og nýttu til þess Frístundakortið. Þá er almennt mikil þátttaka í gjaldfrjálsa starfsemi á vegum frístundamiðstöðva borgarinnar og Hins Hússins.

Stuðningur borgarinnar við íþrótta- og tómstundastarf og aðgerðir til að auka jöfnuð virðist því hafa skilað góðum árangri. Frístundakortið er liður í því en sá styrkur var hækkaður um síðustu áramót og er nú 35.000 krónur á hvert barn.

Sjá tölfræði