Fjórir skólastjórar ráðnir við reykvíska grunnskóla

Skóli og frístund

""

Skóla- og frístundaráð hefur gengið frá ráðningu fjögurra skólastjóra við grunnskóla borgarinnar; Austurbæjarskóla, Breiðagerðisskóla, Seljaskóla og Vesturbæjarskóla.  

Kristín Jóhannesdóttir var ráðin skólastjóri við Austurbæjarskóla. Hún hefur lokið M.Ed. í uppeldis- og menntunarfræði við HÍ  með áherslu á stjórnun menntastofnana og er með diplómu í opinberri stjórnsýslu frá sama skóla.

Kristín hefur mikla reynslu sem kennari, kennsluráðgjafi og stjórnandi, en hún var aðstoðarskólastjóri í Fellaskóla um þriggja ára skeið og hefur verið skólastjóri þar síðastliðin átta ár. 20 umsækjendur voru um stöðuna en umsóknarfrestur rann út 9. mars.

Þorkell Daníel Jónsson var ráðinn skólastjóri við Breiðagerðisskóla. Hann hefur lokið diplómanámi í tölvu- og upplýsingatækni og meistaranámi í stjórnun menntastofnana við HÍ. Hann hefur langa reynslu af kennslu og stjórnun og hefur starfað sem deildarstjóri, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri, síðast í afleysingum við Breiðagerðisskóla.

26 sóttu um skólastjórastöðuna í Breiðagerðisskóla, en umsóknarfrestur rann út 2. mars. 

Magnús Þór Jónsson var ráðinn skólastjóri í Seljaskóla. Hann hefur lokið diplómanámi á sviði mannauðsstjórnunar og er með diplómagráðu á sviði heiltækrar forystu frá Menntavísindasviði HÍ.

Þá hefur hann lokið 30 háskólaeiningum í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst.

Magnús hefur starfað að skólamálum frá árinu 1994;  sem kennari, deildarstjóri og

aðstoðarskólastjóri. Hann hefur starfað sem skólastjóri við Grunnskóla Snæfellsbæjar frá árinu

2006.

20 sóttu um skólastjórastöðuna í Seljaskóla en umsóknarfrestur rann út 9. mars

Margrét Einarsdóttir var ráðin skólastjóri við Vesturbæjarskóla. Hún hefur lokið diplómagráðu frá University of Strathclyde (Advanced Professional Studies) og stundar nám til meistaraprófs í stjórnun

menntastofnana við Menntavísindasvið HÍ. Þá hefur hún gegnt ýmsum félags- og trúnaðarstörfum á sviði skólastarfs og uppeldismála.

Margrét hefur reynslu af kennslu og stjórnun, s.s. leikskóla og grunnskóla og hefur starfað sem deildarstjóri, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri.

21 sóttu um skólastjórastöðuna í Vesturbæjarskóla en umsóknarfrestur rann út 2. mars.

Ráðningu skólastjóra í Réttarholtsskóla var frestað.

Nýir skólastjórnendur í Reykjavík taka til starfa 1. ágúst.