Fjölsóttur upplýsingafundur um Sigtún

Skipulagsmál

""

Breyting á deiliskipulagi Sigtúns 38 og 40 var kynnt fyrir íbúum og hagsmunaaðilum 13. október af sérfræðingum í skipulags og umferðarmálum.

Breyting á deiliskipulagi Sigtúns 38 og 40 var kynnt á fundinum og farið yfir tillöguna, samgöngu-, umferðar- og skólamál, einnig var fjallað um innkomnar athugasemdir og viðbrögð við þeim.

Í breytingunni felst að lóð nr. 38 er stækkuð og heimiluð er aukin uppbygging hótels á henni. Lóð nr. 40 er minnkuð, heimiluð er uppbygging íbúðarhúsa í sex byggingum á henni í stað gróðurskála. Skrifaðir eru nýir sérskilmálar fyrir báðar lóðirnar miðað við breytta uppbyggingu. Tillagan var áður auglýst frá 29. maí 2015 til og með 10. júlí 2015.

Hjálmar Sveinsson formaður umhverfis- og skipulagsráðs opnaði fundinn. Björn Skaptason ariktekt kynnti tillöguna. Björn Axelsson skipulagsfulltrúi fjallaði um innkomnar athugsemdir og úrvinnslu þeirra. Stefán Agnar Finnsson verkfræðingur fjallaði um samgöngu- og umferðarmál. Að loknum framsögum svöruðu þeir fyrirspurnum ásamt Erni Sigurðssyni skrifstofustjóra og Helga Grímssyni sviðsstjóra Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Halldór Nikulás Lárusson var fundarstjóri og Lilja Grétarsdóttir var ritari.