Fjölskylduvika í Vinagerði

Skóli og frístund

""

Árleg fjölskylduvika var á dögunum í leikskólanum Vinagerði en þá eru foreldrar virkir þátttakendur í daglegu starfi skólans.  

Í fjölskylduviku er foreldrum og fjölskyldum barnanna boðið að vera í leikskólanum á ákveðnum tímum á hverjum degi og taka þátt í leik og námi allra barnanna. Slík fjölskylduvika hefur verið haldin í fjögur ár í Vinagerði og fest sig í sessi sem afar ánægjulegur þáttur í foreldrasamstarfinu. Það eru ekki einungis pabbar og mömmur sem koma í leikskólann, heldur líka afar og ömmur og systkini barnanna og úr verður skemmtilegt uppbrot með nýjum leikjum og félagsskap.