Starfsmenn í Foldaskóla fengu fjölnota gjöf fyrir jólin sem setti skemmtilega fræðslu af stað.
Starfsmannafélag skólans gaf öllu starfsfólki fjölnota innkaupapoka sem saumaðir voru úr gömlum dúkum, gluggatjöldum og öðru efni sem mátti endurnýta. Starfsmenn komu með endurnýjanlegan efnivið í skólann og safnaðist heilmikið fyrir. Efnisbútar voru hlutaðir niður og saumaðir úr þeim 100 pokar sem var töluvert meira en starfsfólkið er. Því var ákveðið að merkja umframpokana og fá elstu nemendur í umhverfisráði skólans til að afhenda þá í bekkina, segja frá tilurð þeirra og gagnsemi endurnýtingar. Fjölnota innkaupapokar eru ekki bara umhverfisvænir, endurnýting er skynsamleg og bæði skapandi og skemmtileg.