Nær fjögur hundruð starfsmenn leikskólanna sátu ráðstefnuna Hey, ég fékk góða hugmynd sem haldin var á Hilton Nordica hótelinu 4. febrúar og snerist um þáttöku og áhrif barna á leikskólastarfið.
Á ráðstefnunni voru flutt fjögur áhugaverð erindi þar sem leitast var við að svara spurningum um bein áhrif barna og lýðræðislegt leikskólastarf.
Dr. Auður Pálsdóttir, lektor við menntavísindasvið HÍ leitaðist í sínu erindi við að svara spurningunni hvað vilja leikskólabörn geta? og gekk út frá sjálfbærnimenntun sem er einn grunnþátta í aðalnámskrá.
Gunnur Árnadóttir, deildarstjóri í leikskólanum Garðaborg, flutti erindið Margir einstaklingar – Eitt samfélag þar sem hún sagði frá þróunarverkefninu Lýðræði í Garðaborg þar sem markmiðið var að þróa lýðræðislegar aðferðir við stjórnun leikskólans í samstarfi barna, foreldra og starfsfólks.
Dr. Guðrún Alda Harðardóttir, pedagogista í leikskólanum Aðalþingi í Kópavogi, nefndi sitt erindi Sá sem ekki vill finnur ástæður…Hún fjallaði um hvernig mætti skapa börnum tækifæri til að taka virkan þátt í ákvörðunum í leikskólastarfi.
Ólöf Jóna Sigurjónsdóttir og Sigrún Ósk L. Gunnarsdóttir, deildastjórar í leikskólanum Langholti, sögðu, í erindi sínu, Skína smástjörnur – Getumikil börn í Langholti, frá því hvernig þróunarverkefnið um gæði í starfi með yngstu börnunum hefur breytt viðhorfum, námsumhverfi og skipulagi leikskólastarfsins.
Hildur Skarphéðinsdóttir, skrifstofustjóri á SFS, setti ráðstefnuna og Friðbjörg Eyrún Sigvaldadóttir, leikskólastjóri í Hálsaskógi, tók saman efni ráðstefnunnar og sleit henni.
Ráðstefnustjóri var Gróa Sigurðardóttir deildarstjóri í leikskólanum Hofi.
Ráðstefnan er sú fjölmennasta sem haldin hefur verið fyrir starfsfólk leikskóla borgarinnar og tókst afar vel í alla staði. Góður rómur var gerður að erindunum og hvernig þau spiluðu saman.