Fjölbreytt dagskrá á þjóðhátíðardaginn

Skóli og frístund Íþróttir og útivist

""

Hefðbund­in morg­undag­skrá verður á Aust­ur­velli í Reykja­vík á þjóðhátíðardaginn. Klukkan 13 fara skrúðgöng­ur af stað og um hálf tvö hefjast barna- og fjöl­skyldu­skemmt­an­ir í Hljómskálagarði. Tónleikadagskrá verður á sviðum í miðborginni.

Hátíðardagskrá á Austurvelli hefst klukkan 11.10 á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Lagður verður blómsveigur frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og forsætisráðherra heldur hátíðarræðu og Fjallkonan flytur ávarp.

Að lokinni dagskrá á Austurvelli fer skrúðganga að Hólavallakirkjugarði. Fjöldi fólks tekur jafnan þátt í göngunni og safnast saman við leiði Jóns Sigurðssonar þar sem Sóley Tómasdóttir forseti borgarstjórnar leggur blómsveig á leiðið.

Skrúðgöngur fara svo frá Hlemmi og Hagatorgi klukkan 13 og koma í miðbæinn um hálf tvö. Hátíðarsdagskrá verður svo í Hljómskálagarði og í Hallargarðinum verður Brúðubíllinn. Á  Austurvelli, Ingólfstorgi og við Arnarhól verður boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna til klukkan 19 annað kvöld. Dagskrána má sjá í heild sinni á www.17juni.is/dagskra.