Haldin var vegleg afmælishátið í tilefni 40 ára afmælis Fjölbrautaskólans í Breiðholti laugardaginn 3. október. Margt var um manninn, nemendur fyrr og nú, kennarar og velunnarar skólans tóku þátt í hátíðahöldunum. Eygló Harðardóttir, félagsmálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri héldu ræðu og að því loknu var boðið upp á tónlistardagskrá. Gestir gátu gengið um skólann og kynnt sér hinar ýmsu deildir skólans.
Það var Birgir Ísleifur Gunnarsson, þáverandi borgarstjóri sem flutti ræðu við fyrstu setningu Fjölbrautaskólans þann 4. október 1975. Birgir Ísleifur sagði þá að mikilvægum áfanga væri náð á langri leið sem hófst árið 1970 með samþykkt tillögu í borgarstjórn Reykjavíkur þar sem segir: „Borgarstjórn telur, að vaxandi fólksfjöldi í Reykjavík ásamt fjölbreyttari atvinnuháttum og starfsskiptingu geri nauðsynlegt að hafinn sé undirbúningur að endurskipulagningu á framkvæmd og markmiði kennslunnar í skólum borgarinnar, og þó einkum að því er varðar gagnfræðaskóla og námsefni þeirra. Telur borgarstjórn því æskilegt, að gerð verði að fengnu samþykki menntamálaráðuneytisins tilraun í einum af skólum borgarinnar með framhaldsskóla, er næði til 19 ára aldurs, þar sem velja mætti um fjölbreytt nám og mismunandi námsbrautir. Markmið slíks skóla væri annars vegar að búa nemendur sem best undir að hefja störf i hinum ýmsu greinum atvinnulífsins, en miðaði hins vegar að því að veita þeim nemendum, sem hygðu á frekara nám, nægilegan undirbúning til inngöngu í háskóla eða aðrar menntastofnanir á háskólastigi."
Undirbúningur að málinu hófst fljótlega eftir samþykkt borgarstjórnar ogí desember 1971 var samþykkt í borgarstjórn stofnun skólans, og honum valinn staður í Breiðholtshverfi í Reykjavík, en þá var tiltölulega nýlega hafin uppbygging þess hverfis.
Með stofnsetningu fjölbrautaskóla var verið að svara gagnrýni sem sneri að því að nemendur hafi þurft að ákveða mjög snemma á námsbrautinni að gera upp sinn hug um það, hvort þeir hefðu í hyggju að stunda langskólanám eða ekki. Fjölbrautaskólinn átti að veita fjölbreyttari tækifæri til náms og voru miklar væntingar gerðar til skólans í kjölfarið.
Með setningu Fjölbrautaskólans í Breiðholti árið 1975 var komin til framkvæmda hugmynd um stofnsetningu fjölbrautaskóla. Skólinn var á byrjunarstigi og átti eftir að vaxa og eflast og festa rætur í þjóðlífinu og það hefur svo sannarlega gengið eftir.
Til hamingju með afmælið Fjölbraut í Breiðholti!