Fimmtudagsfræðsla - Styðjandi og árangursríkt uppeldi

Velferð Skóli og frístund

""

Hafið þið áhuga á að kynna ykkur styðjandi og árangursríkar leiðir í uppeldi? Er erfitt að fá börnin í háttinn á kvöldin, til að vakna á morgnana eða að læra heima? Fimmtudaginn 15. janúar kl. 17.00-18.30 verður haldinn áhugaverður fyrirlestur á vegum Menntunar núna í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Guðný Júlía Gústafsdóttir og Þuríður Sigurðardóttir, félagsráðgjafar frá Þjónustumiðstöð Breiðholts kynna styðjandi leiðir og aðferðir og kynna PMTO foreldranámskeið. Boðið er upp á afþreyingu fyrir börnin á bókasafni á meðan á fræðslunni stendur.

Fimmtudagsfræðslan er opin fræðsla fyrir foreldra í Breiðholti. Hún fer fram annan hvern fimmtudag og er samvinnuverkefni Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, Menntunar núna og Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergi.