Félagsmiðstöðvarnar stóðu sig vel í Stíl

Skóli og frístund

""
Þrenn verðlaun í hönnunarkeppninni komu í hlut félagsmiðstöðva í borginni. 
Hönnunarkeppnin Stíll sem Samfés (Samtök félagsmiðstöðva á Íslandi) stendur fyrir fór  fram í Hörpu í 15. sinn
28. nóvember sl.
 
Rúmlega tvö hundruð unglingar í 40 liðum tóku þátt í keppninni en þemað að þessu sinni var „náttúra“ sem endurspeglaðist í hönnun unglinganna. Öll vinna keppanda við módelin fer fram á staðnum en klæðnaður er hannaður af unglingum fyrirfram og flestar félagsmiðstöðvar halda undankeppni til að velja sitt framlag. Hver hópur skilar einnig möppu sem sýnir vinnuferlið frá hugmynd að lokaafurð sem studd er teikningum og ljósmyndum af flík, hári og förðun og útskýrir hugmyndina á bak við hönnunina.
 
Félagsmiðstöðin Klakinn í Garðabær sigraði keppnina að þessu sinni en félagsmiðstöðvarnar í Reykjavík nældu sér í þrenn verðlaun. Félagsmiðstöðin 105 í Háteigsskóla var í 2. sæti í keppninni, Tían í Árbænum fékk verðlaun fyrir besta hárið og Fókus í Grafarholti fékk verðlaun fyrir bestu hönnunarmöppuna.