Íþróttafélagið Fylkir hefur sent borgarstjóra bréf þar sem lýst er yfir vilja félagsins til að gefa eftir æfingasvæði félagsins á milli Hraunbæjar og Bæjarháls en í staðinn leggi Reykjavíkurborg gervigras á aðalknattspyrnuvöll og æfingavelli félagsins. Borgarráð fjallaði um erindið á fundi sínum í Árbæ í gær.
Fylkir hefur notað æfingasvæðið á milli Hraunbæjar og Bæjarháls til æfinga fyrir yngri flokka í mörg ár. Svæðið er um 175 metra langt og 80 metra breitt og um 14 þúsund fermetrar að stærð. „Þetta svæði hefur verið Fylki mikils virði í áratugi en nútíminn kallar á betri aðstöðu á heimasvæði Fylkis,“ segir í bréfinu sem Björn Gíslason formaður Fylkis undirritar.
Hugmynd Fylkis gengur út á að Reykjavíkurborg hafi hag af því að nýta svæðið til að þétta byggð en aukinn fjöldi barna og iðkenda íþrótta í hverfinu kæmi hins vegar Fylki til góða.
Afstaða borgarráðs gagnvart erindinu er jákvæð og var því vísað til gerðar hverfisskipulags og borgarstjóra falið að hefja viðræður við Fylki samhliða nauðsynlegu samráði.