Evrópskum tungumáladegi fagnað

Skóli og frístund

""

Skemmtileg dagskrá var á Evrópskum tungumáladegi til heiðurs öllum þeim tungumálum sem eru töluð á Íslandi og í Evrópu.

Evrópskum tungumáladegi var fagnað í bókasafninu Gerðubergi laugardaginn 26. september þegar haldið var Cafe Lingua. Skipuleggjendur voru skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, Borgarbókasafnið og Móðurmál – samtök um tvítyngi.

Litháíski barnakórinn tók nokkur lög og kenndi gestum orð í lítháísku, Einar einstaki töfraði fram frábært andrúmsloft og PLeikhús kom á óvart með mjög erfiðum pólskum tungubrjótum.



Á borðum voru gestum kynnt ýmis tungumál, s.s. tékkneska, litháíska, pólska, enska, ítalska og arabíska. Móðurmál, samtök um tvítyngi kynnti starfsemi sína og einnig var boðið upp á leiki og fróðleik um tungumál.



Tilgangur Evrópsks tungumáladagsins er að sýna tungumálafjölbreytileika í Evrópu og að ýta undir mikilvægi þess að ungir sem aldnir læri fleiri en eitt tungumál.