eTwinning skólaverkefnið 10 ára

Skóli og frístund

""

Upplýsingatækniverkefnið eTwinning er verkefni á vegum Evrópusambandsins sem fagnar tíu ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni afmælisins var efnt til samkeppni og gátu nemendur um allt land sent inn myndbönd sem birt voru á heimasíðu verkefnisins. 

Meðal grunnskóla í Reykjavík sem sendu inn efni í tilefni afmælisins var Kelduskóli. Nemendur gerðu mörg skemmtileg myndbönd sem hægt er að skoða á heimasíðu skólans, m.a. um Litla prinsinn. 

eTwinning er  skólasamfélag á netinu þar sem hægt er að komast í samband við evrópska kennara og skólafólk, taka þátt í einföldum samstarfsverkefnum og sækja sér endurmenntun á vinnustofum og námskeiðum.