Ester er ný nálgun í forvarnarstarfi og efni fyrsta fundar vetrarins hjá Náum áttum, opnum samstarfshópi um fræðslu og forvarnamál. Fundurinn er miðvikudaginn 30. september klukkan 8.15 til 10.00. Fundurinn er haldinn á Grand Hóteli, Sigtúni 38.
Frummælendur eru allir frá Barnaverndarstofu en Ester er aðferð notuð í barnaverndarstarfi og snýr að því að meta þætti sem hafa áhrif á þróun frávikshegðunar hjá börnum. Aðferðin gagnast ekki síður í uppeldi, í starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla sem og í heilsugæslu.
Frummælendur eru;
Þórarinn Hjaltason,sálfræðingur, sem fjallar um gagnsemi og notkun mælitækja í forvarnarstarfi.
Páll Ólafsson, sviðsstjóri ráðgjafarsviðs, sem heldur erindi um Ester, mat á áhættu og verndandi þáttum hjá börnum og fjölskyldum þeirra.
Steinunn Bergmann, félagsráðgjafi, sem ræðir snemmtæk úrræði fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Fundarstjóri er Salbjörg Bjarnadóttir, geðhjúkrunarfræðingur og verkefnisstjóri Embættis landslæknis. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að fólk skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.naumattum.is. Þátttökugjald er 2.400 krónur en innifalið í því er morgunverður.